Er eins og lítill krakki að bíða eftir jólunum!Hef ekki komið neinu í verk í dag.. svo það er alveg eins gott að blogga bara aftur!!(hehe.. já þetta er svo slæmt!)
En það verður sko ekki erfitt að velja fríhafnarplötuna í þetta skiptið.. kemur náttúrulega ekkert annað en Mugison til greina ;)
Langaði líka bara að segja ykkur að ég þori nánast að lofa að ég mun aldrei blogga á þetta blogg aftur.. þ.e eftir að ég kem heim ! !Svo þið sem ennþá hafið tórað við að kíkja hérna inn annað slagið, og eruð ekki komin með leið á prumpuhúmornum mínum, þurfið ekkert að vera að kíkja hérna inn aftur.. BUT..ég er með facebook og myspace.com/sandra_dis_s.Svo ef ég er ekki vinur ykkar þar, viljiði þá endilega adda mér :)
Ætla að (hmm) REYNA að byrja að spara péninga méninga þegar ég kem heim (..ekki það að ég eigi eitthvað til að eyða..en)..Næst á dagskrá eru fullt af flippuðum hlutum.. Vonandi skiptinám með Berglindi, sætustu hjúkkunni minni, til Ástralíu á næsta ári (..á valtímabilinu..) og nottla heimsreisan með bestu gúrku-stelpu í heimi ;) Guð hvað ég vona að af henni verði!! :)Úúú svo er Salar frændi að fara að skiptinemast í Brasilíu á næstu önn.. sjitt hvað það er hrífur að fara að heimskoppa hann ;)Hmm.. hehe.. held ég þurfi ansi mikið að spara!Ekki?Eyðslukló?Hvað meiniði að með því að ég geti ekki sparað?
Þegar ég kom hingað til Oslo í ágúst og sá allt fólkið hjólandi út um allt, sérstaklega úti á götunum, hugsaði ég með mér:“Guð, hér ætla ég sko aldrei að hjóla”.Fannst þetta líta út fyrir að vera stórhættuleg iðja, sérstaklega þar sem hjólreiðamennirnir.. úff þeir fara svo hratt .. og bara svína og allt!Svo bauðst mér hjól, ég þáði það með þeim “skilyrðum” að ég fengi hjálm líka.. það fékk frekjan!Þegar ég steig upp á hjóli, með hjálminn á höfðinu og hjólaði í skólann í fyrsta sinn hét ég því að ég myndi alltaf nota hjálminn og að ég myndi aldrei hjóla úti á götu.
En hver haldiði að tæplega þremur mánuðum síðar hjóli á miðri götunni, svíni fyrir bílana með puttann á lofti.. hjálmlaus!Já það tekur ekki lengri tíma en þetta fyrir saklausan meyjarblæinn að skolast í burtu!
En í bekknum mínum er allt brjálað núna.. Ríkisstjórnin hérna var að ákveða að það eigi að eyða 20 milljónum nkr minna í læknadeildina í Oslo og hefur sett fram þá tillögu að 10. önnin verði afnumin í þeirri mynd sem hún er núna, þ.e. eina verknámið sem nemarnir fá á kirugíu og medicin!!(Verknám er víst það dýrasta við þetta allt saman)Og í staðin verði fyrirlestrar og önnur stór ritgerð. Ef þetta gengur í gegn verður bekkurinn minn sá fyrsti sem þetta bitnar á. En hvað er að.. Gaman t.d að vera kominn á kandidatsárið og ver að stíga inn á lyflæknadeild í fyrsta skiptið! hehe.. þetta hlýtur að vera spaug!!! Vá hvað það yrði allt brjálað ef þetta ætti að gera heim.. Enda er líka allt í háloftunum hérna í deildinni.. Hehe gott að ég er að fara heim ;)
En í kvöld er ég boðin í mat til bestustu Kobba&Sollulinganna minna.. á morgun er matarboð hjá Eddu, í nýju íbúðinni í Kópavoginum.. og á sunnudaginn hjá Berglindi í nýju íbúðinni hennar í Vogunum!Jeij.. :) ..ég á eftir að líta svo vel út eftir þessa helgi ;)Svo ætluðu Sara og Ísak að vera svo góð að bjóða mér í mömmumat um helgina.. en nei nei Sandran bara bissí.. synd :(
Kveðja úr borg vetrarólympiuleikanna 1952 (já gaman að segja frá því aðþá keppti meðal annars Ebbi heitinn nágranni á gönguskíðum fyrir Íslands hönd!)
Um daginn las ég aðsenda grein á bb.is (10.10.’07).Hún bar heitið: ,,Geðsjúkir, stöndum upp fyrir okkur sjálf!". Og höfundur skrifaði undir:Svava Ingþórsdóttir. Höfundur greindist með geðklofa á tvítugsaldri og hefur verið að berjast fyrir réttindum geðsjúkra þegar hún hafði heilsu til.Mér fannst þetta forvitnileg og fín grein.Sérstaklega dáist ég að höfundinum þar sem hún gerir allt til að horfa á björtu hliðar þess að vera geðfatlaður einstaklingur á Ísafirði.Það held ég að sé ekki létt.Þar kemur inn í skoðun mína að samfélagið er mjög lítið, því miður er það ennþá svo að geðfatlaðir hafa ákveðið stigma á sér (en sem betur fer mun minna en bara fyrir nokkrum árum) og það að geðþjónustan, hvað varðar heilbrigðisgeirann, á Ísafirði er af afskaplega skornum skammti.En mig langar að fá að vitna í lokaorð greinar Svövu:,,Vinur minn lýsti líðan sinni svo vel, mér finnst það eiga við mig líka: „Lífið er eins og póker. Sumir eiga hús eða lengjur og geta farið í skóla, góða vinnu og hafa endalaust af tækifærum í lífinu. Eru með góð spil á hendi en við erum kannski bara með eitt spil á hendi, en það er aðalspilið! Veistu hvaða spil það er? Það er Jókerinn… tilheyrir ekki einu sinni bunkanum en er samt alltaf þarna.“”
Er búin að senda heim tvær töskur af dóti (aðallega fötum!), þær voru 18 og 14 kg.Sigga Svana ætlar að taka heim fyrir mig tvo poka, þeir eru 9 kg (saman).Svo verður gámurinn minn líklega rúmlega 20 kg og handfarangurinn um 8 kg!Greinilega búin að vigta þetta allt í þaula hehe!Þetta þýðir að ég er með tæp 70 kg af dóti.Er það hægt?
Oh það er svo gott að ferðast svona létt ;)En ég held ég sé sammála Siggu.. það munar öllu fyrir mig, um tannþráðinn.
Í geðkúrsinum á Íslandi er sérstök kynlífslota, þar sem farið er sérstaklega í kynímynd, kynlíf, kynlífsvanda og fleira.Nokkuð sem mér finnst mjög sniðugt.Þessu hafa Norðmennirnir alveg ákveðið að sleppa úr námi sinna nema!Ég ákvað að renna yfir íslensku glósurnar, dæmi um athyglisverða glæru.
Tengsl heilsu og kynlífs: vFarvegur tengslamyndunar meðal fullorðinna (“frjóvgar” náin sambönd) vEykur framleiðslu Oxytocin og Vasopressin vStuðlar að betri andlegri líðan vUppfyllir ákveðnar kynferðislegar þarfir vFrjóvgar eggið vEr hluti af “félagslegum stuðningi”- hafa e-n til að leita til vKynferðislega snerting auðveldar tjáningu tilfinninga vJákvæð áhrif á ónæmiskerfið og margt fleira… .
Í þessum glósum var líka mikið af skemmtilegum myndum.
Þökkum guði (eða kannski frekar nútímasamfélagi) fyrir að það að stunda sjálfsfróun þykir nú orðið eðlilegt og heilbrigt..
.. en kannski í “hófi”! En þetta er allt í lagi, við stelpurnar erum nokkuð save.. skiptum bara um batterí!
Í lokin mynd af fallegu Kringsja
Ha det.. Hej heij (verð að viðurkenna að mér finnst norsk kveðja frekar "öfug"!)
Bara ein lítil spurning.. Í hvaða rækt á ég að fá mér kort þegar ég kem heim? Er alveg komin með nóg af háskólaræktinni og ætla að prófa eitthvað annað.. Er það World class eða Hreyfing eða Sporthúsið hvað þetta heitir allt saman..
Mjög algeng spurning á eftir spurningunni:“Hvað ertu að læra?”Sem er auðvitað gott og gilt, það er jú orðið nær undantekningarlaust að læknar fari í sérnám (eða að því sem ég best veit..).En svarið við þessari spurningu er hins vegar ekki alltaf á takteinunum hjá mér.. já og hefur verið mjög breytilegt í gegnum námsárin!Mér hefur oft liðið eins og ég sé lygari þegar ég er spurð að þessu, því mér finnst ég sjaldan gefa sama svarið!Ég fór í námið til að verða fæðingarlæknir.Á fyrsta ári langaði mig að verða kirug, á öðru ári hjartalæknir, á þriðja ári bráðalæknir, á fjórða ári uppgötvaði ég “fegurð” smitsjúkdómanna og núna eru taugalækningar mjög heitar, eins og áður hefur komið fram (taugakúrsinn vel að kikka inn!)..Þess má þó geta að ég hef enn brennandi áhuga á þessu öllu (kannski síst skurð.. þær eru bara eiginlega alveg að dottnar út), kannski sem betur fer.. er jú bara rétt að byrja!
Langaði bara að koma þessu á framfæri svo mér finnist ég ekki eins mikill lygalaupur!..En ég hef jú alltaf svarað eftir “löngun”.. á hverjum tíma :)
En matarboð hjá Rannveigu frænku í kvöld.. ég get meira að segja farið með óvæntan til þeirra.. smá íslenskt nammi (frá Eddu!) :)
..það er ég.Varð reyndar hlutlaus andi þegar ég tók gleraugun niður.En læknirinn sem ég var með var góður andi (..þó hún hafi líka verið með gleraugu).
Vildi bara láta ykkur vita, svona svo þið séuð viðbúin fyrir heimkomuna..
En það sem er af helginni er búið að vera æðislegt.Við Sigga Svana fórum í bíó á Michael Clayton með George Clooney á fimmtudaginn.. Silfurrefurinn alltaf jafn mikið hönk.Svo fórum við Helga í heimsókn til Áslaugar í gær og við skelltum okkur svo út.. byrjuðum á því að rölta um en ákváðum svo að kíkja inn á skandinavíska ljóðaveislu í menningarhúsinu!Hehe hvað mér fannst við góðar á þvi!En við vissum að hann Eiríkur Örn Norðdal ætti að lesa þar upp úr ljóðum sínum (sjá frétt á bb.is).Hittum þar fyrir Siggu Gísla (sem var að klára sýklaprófið sitt og er að fara heim á morgun!), Dóru og Hálfdán alveg í sínu besta.En Eiríkur var ekkert smá flottur, frábært að sjá hann.. sérstaklega hérna í Oslo.Hann byrjaði á að lesa eitt af ljóðunum sínum, sem er á íslensku, með norskum hreim.. Það var ótrúlega skondið.. pissuðum næstum því á okkur!En við stöllur fórum svo m.a á Októberfest læknanema og gerðum nokkrar gloríur (Helga átti t.d sína föstu föstudags-sessjon með plötusnúðinum). Kvöldið endaði svo á því að kjóllinn minn fékk sér yndislegan Bislet - kebab! (og í dag væri ég alveg til í að eiga bio-tex!) Nokkrar myndir!
Vinkonurnar mættar.. á barinn!
..hugsa að við gætum reynt að brosa, þó það væri ekki nema smá!
Opin augu.. jeij!
Þetta átti að vera fýlu-DJ-mynd! (tókst ágætlega!)
McSteamy hvað..
..við erum að tala um að fara yfir á stökkið
á leiðinni heim :)
En ég var að skoða vefsvæðið hjá bekkjar"bróður" mínum um daginn og sá þá ýmsar skemmtilegar myndir.. hehe.. Ég ætla að gefa mér leyfi til að setja smá hérna inn (vonandi í lagi!).
Bwahah.. þarna vorum við nú ung og vitlaus!! (annað en í dag.. hmm)! Held að þetta hafi verið á 2.ári (ja eða, mesta lagi þriðja!).. En það voru allavegana almennilegar vísó í þá daga.. þar sem ölið var teygað af miklum móð ;)
Bara ágætis fyrirbrigði.En úff hvað ég er fegin að því er lokið.Var þó einungis 3 vikur, sem er mun styttra heldur en ég hefði tekið, hefði ég haldið mig heima við þessa önnina (eins og allar hinar!).Byrjunin var reyndar heldur betur ekki það besta sem ég hef lent í.Hringdi í leiðbeinandann minn til að láta hana vita af komu minni mér, þetta var ca 3 vikum áður en verknámið byrjaði.Ég fékk útlendingahatur í fyrsta sinn beint í fésið.Hún varð óð (eins og ég held að ég hafi áður lýst) og sagði að ég hlyti að vera nokkuð heimsk að koma til annars lands í verknám þar sem ég kynni ekki að tala fullkomnlega (bara með aðeins fallegri orðum).Sagðist svo vera með sjúkling hjá sér og skellti á. Ég fór næstum því að gráta (!) og hugsaði nottla mikið um það hversu vitlaus ég væri nú.. Hvernig í ósköpunum datt mér þessi vitleysa í hug!Ómeðvitað var ég með kvíðahnút í maganum næstu 3 vikurnar og næstum skalf þegar ég mætti fyrsta daginn minn í verknámið.En strax þegar leið á fyrsta daginn sá ég að þetta yrði líklega alls ekki eins slæmt og ég bjóst við.. Leiðbeinandinn minn mildaðist fljótlega (eftir að hún hafði tekið mig á kontórinn sinn snemma morguns, fyrsta daginn, og haldið sömu ræðuna yfir mér og hún hélt í símann).3 vikurnar liðu.. og það var svona eiginlega ást-hatur samband á milli okkar.. sem endaði þó næstum því bara með “ást”-hlutanum síðustu vikuna.Og hvað haldið þið að hún hafi sagt við mig síðasta daginn, þegar við kvöddumst?(sko tók mig inn á kontórinn aftur..) Ekki einu sinni reyna að giska samt.. óútreiknanleg þessi kona!Ekki einu sinni Inga gæti það og hún er nú góð í stærðfræði.Hún sagði að ég væri besti nemi sem hún hefði haft.Það munaði ekki um það, og svo fékk ég meira að segja í smáatriðum niðurbútað af hverju henni fyndist það, af mjög miklum tilfinningamóð.En vitiði hverju ég komst að á þessum 3 vikum.Kellan er preggó, komin 18 vikur!Auðvitað.. skýringin kom gangandi til mín.. hehe.Greyjið hún er greinilega bara engan vegin að ráða við hormónasvingið sitt..Eða kannski frekar:Það eru áramótasprengju-fagnaður hjá hormónunum í hausnum á henni. Ég fékk það allavegana bara í ökklann og eyrað!
Eftir þessa upplifun mína hef ég mjög sterka skoðun:Það ætti að borga þeim kvenkyns geðlæknum sem vilja taka sér frí á meðgöngu, fyrir að vera heima!Hehe..
Sætasta cucumber girl í heimi fyllir fjórðung úr öld í dag.. En hver er þessi stelpa eiginlega?
Alltaf sú kvenlegasta á myndunum allavegana.. og það byrjaði snemma (held að þetta sé úr 7 ára bekk!!)
8 ára.. Ég held að mamma hans Greips elski okkur ennþá, vorum svo góðir nemendur ;)
Markvörðurinn ógurlegi.. Þarna sést hún, önnur stúlkan frá vinstri.. Ja það voru ekki allir sem fengu að upplifa það að hafa Róbert sem þjálfara ;)
Oh allar sveitastúlkurnar komnar á mölina!
Hérna sést í rassinn á henni.. á Jónsmessunótt.. Við skilmistum aðeins hvað ætti að gera á miðnætti!
..í sumar :)
og þarna er verið að biðja hennar.. (bwahah)
Það er bara ein.. ;)
Innilega til hamingju með daginn dúllan mín :) Ég sá að það var einn hérna fyrir utan í morgun með köku.. hann bakaði hana örugglega í tilefni dagsins ;)
Knús frá Oslo, Sandra.
P.s Helga, hátíðin er um miðjan ágúst! Djöfull lýst mér vel á þig núna ;) P.s.s Þuríður mín.. þú varst bara á kolvitlausum tíma í Oslo ;) Bara koma núna! hehe